Íslyft tók við umboði fyrir John Deere dráttavélar árið 2017 og hefur hlutdeild John Deere á Íslandi aukist jafnt og þétt síðan þá. John Deere er leiðandi dráttavélaframleiðandi í Evrópu og Bandaríkjunum og er eitt þekktasta vörumerki heims á sviði landbúnaðartækja. Tækin fást í ýmsum stærðum og útfærslum. Við bjóðum upp á alhliða þjónustu og viðgerðir og getum útvegað varahluti í öll tæki með hraði.
Avant eru markaðsleiðindi í heiminum á sínum stærðarflokki liðléttinga og umboðið fengum við árið 2018. Viðbrögð við Avant og hinum fjölbreytta aukabúnaði sem Avant býður upp á hefur farið fram úr björtustu vonum og hafa tækin verið söluhæstu liðléttingarnir flest af síðustu árum. Tækin bjóða upp á frábærar lausnir á ýmsum sviðum m.a. í landbúnaði, byggingariðnaði og sjávarútvegi og hafa verið mjög vinsæl hjá sveitafélögum, bændum og ýmsum fyrirtækjum. Yfir 200 Avant tæki eru í notkun á Íslandi í dag. Einn stærsti styrkleiki Avant er mikið úrval aukahluta en hægt er að fá yfir 250 mismunandi aukahluti sem hægt er að sjá á heimasíðu Avant.
Hér má sjá heimasíður umboða. Hafið samband við sölumenn í síma 564-1600 eða á islyft@islyft.is fyrir frekari upplýsingar.